Heim | Samband | Leit | Höfundur
Brown í bráðri hættu
26/04 2010 22:32
Nick Clegg, formaður Frjálslyndra demókrata, er nú í nokkurri vörn, því hart er sótt að honum að útlista hvað flokkurinn muni gera í hinum ýmsu aðstæðum sem upp gætu komið í kjölfar kosninganna 6. maí.

Fram til þessa hefur hann svarað slíkum spurningum með almennt orðuðum yfirlýsingum um að kjósendur kjósi - svo sé það á ábyrgð stjórnmálamanna að mynda þá ríkisstjórn sem best getur unnið að hagsmunum almennings.

En í þætti Andrew Marr á sunnudag, afþakkaði hann pent samstarf við Gordon Brown, fái Verkamannaflokkur flest þingsæti (án meirihluta), en fæst atkvæði.


Í mínum huga er hún fráleit, sú hugmynd að flokkur sem nái þriðja sæti í atkvæðum talið, skuli samt sem áður eiga rétt á áframhaldandi hústöku í [Downingstræti] 10 og geti enn gert kröfu um að forsætisráðherra landsins komi úr þeirra röðum.
(Andrew Marr Show 25.04 2010)

Clegg tók hér ákveðna áhættu, sem þó er skiljanleg í ljósi þess Cameron hefur haldið því mjög á lofti undanfarið að atkvæði greitt Frjálslyndum demókrötum jafngilti atkvæði til Gordon Brown. 

En er þá samstarf við Verkamannaflokk útilokað?

Nei, svo virðist ekki vera.  Ræddur er sá möguleiki að fórna Brown, ef Verkamannaflokkur kemur illa út í atkvæðum talið - og fá Alan Johnson eða David Miliband inn í staðinn.
Slíkt gæti hugnast Clegg, sem sagði fyrr í dag hann væri til í að vinna með ýmsum innan Verkamannaflokks, t.d. Johnson eða Miliband, en alls ekki Gordon Brown.

He insisted he had “nothing personal” against the Labour leader, despite calling him “desperate” last week, but claimed he could not cling on to power if Labour ended up with fewer votes than the Lib Dems and the Tories after the election.
[...]
...I will work with anyone, I will work with a man from the moon, I don't care, with anyone who can deliver the greater fairness that I think people want.
(Telegraph 26.04 2010)

Sem sagt; engar brýr hafa verið brenndar varðandi Verkamannaflokk, svo fremi Brown verði fórnað.  Sem gæti vissulega reynst erfitt.

Í því samhengi bendir Martin Kettle á að Verkamannaflokkur er, líkt og áður hefur sannast, ófær um að losna við hinn valdagíruga Gordon.  Ætli hann að sitja áfram, muni hann sitja sem fastast.

Yet even if we only look at the period from the start of 2007 onward, two things are fairly clear about the Labour party. The first is that Brown is very uncompromising in his pursuit and retention of power, while the second is that his critics are completely unable to agree on how, when and whether to force the issue against him.
(Martin Kettle, Guardian 26.04 2010)

Í sjálfu sér rétt hjá Kettle, en aldrei skyldi maður þó vanmeta fólk sem sér fram á að missa völdin.

Brown er klárlega í hættu.
 

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
viagra professional | cheap viagra uk | viagra pill | viagra 100mg price | cheap viagra pills | discount viagra | cialis online no prescription | cialis sales uk | viagra price | buy cialis online | generic viagra online | order viagra | cialis coupon | real viagra