Heim | Samband | Leit | Höfundur
Dansandi drengir í Afghanistan
02/05 2010 00:25
Í heimildamyndinni Dancing Boys of Afghanistan er sögð hörmungarsaga úr samfélagi hvar aðgengi að konum er takmarkað og ungir drengir eru líkt og stöðutákn háttsettra manna; talað er um "eigendur" drengjanna. 
Herforingi segir frá því konan hans eigi strangt til tekið að gera líkt og hann skipar, en hann hafi þó ákveðið að "fá sér ekki dreng" nema konan samþykki.

Vinsælar eru veislur hvar ungir drengir eru klæddir í kvennmannsklæði og þeir látnir dansa á eggjandi hátt fyrir hóp karlmanna - þjálfun drengja fyrir slíkar danssýningar (Bacha Bazi) tekur um ár.  Þessi aldagamla hefð var bönnuð á valdatíma talibana, en nú hafa fyrrum stríðsherrar komið henni á koppinn aftur.
Allt fyrir opnum tjöldum - lögreglan mætir í veislurnar, oftar en ekki sem áhorfendur.  Handtökur eru framkvæmdar við og við, til málamynda, en mönnum sleppt jafnóðum.

Drengir sem reyna komast burtu eru líflátnir.  Það veldur engum usla.  Drengirnir eru teknir af fátækum fjölskyldum og morðingjarnir eru voldugir.

RÚV gæti gert margt vitlausara en að sýna þessa heimildarmynd, hafi hún ekki þegar verið sýnd á Íslandi.

dancing_boys.png
 
Gagnrýni (3)
1 02/05 2010 01:09
Hákon Jóhannesson
Við nánari skoðun er óréttlætið, ofbeldið og kúgunin oft ekki langt undan. Ekki þarf ekki að fara um langan veg. Afghanistan segir þú.

En mér datt í hug við lestur þessa ágæta pistils hvort ekki væri einhver skyldleiki með þessari iðju og nektardansstöðunum hér og þeirri starfsemi sem þar hefur farið fram á síðkvöldum.

Hið opinbera hefur nefninlega nú um nokkurt skeið veitt þeirri starfssemi brautargengi hér í austurbæ Kópavogs.
2 02/05 2010 10:35
Matthias
Eitt af því sem þótti ótrúverðugt við bókina Flugdrekahlauparann var einmitt lýsing á einni söguhetjunni sem dansdreng. Greinilega raunverulegra en maður hélt.
3 02/05 2010 11:02
baldur
Já, Hákon, ef nektarstaðir á Íslandi eru eins og hér, má telja líklegt þar megi finna starfsemi sem þolir illa dagsljósið.
Êg er ekki að segja svo sé í öllum tilfellum - en hættan er fyrir hendi.

Matthías, ég skrifaði um Kite Runner hér. Samfélagslýsingar í bókinni passa ágætlega við það sem ég heyri í mínu starfi.

Þakka ykkur innlitið ;-)

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
viagra canada | discount viagra canada | cheap viagra online | cheap viagra uk | order viagra online | cialis sales | viagra professional | cialis no prescription | discount cialis | viagra 100mg | buy real viagra | canada viagra | buy cialis online | viagra pills