Heim | Samband | Leit | Höfundur
Eldgos: púlsinn á hárgreiðslustofunni
17/04 2010 18:10
martin-rowson-nick-clegg--001Ég var drjúga stund á hárgreiðslustofunni í dag, meðan kúnnar með minna hár og einfaldari kröfur streymdu inn og út um dyrnar.  Umræðuefnið var á eina vegu!

Íslenska eldgosið.

Eftir þá reynslu met ég viðbrögð Breta þannig að þeim þyki þetta fyrst og síðast spennandi.  Vissulega þekktu flestir einhvern sem þjáist vegna eldgossins, t.d. maðurinn sem býr á efri hæð stofunnar, en hann á ungan son sem fór til Dubai í skólaferðalag og situr fastur. 

Sú saga vakti reyndar fremur samúð með kennurunum, sem fóru með hópinn.

Þá voru þarna heimspekilegar vangaveltur um flugfíkn mannfólksins og hve háð við værum tækninni - hvort það væri heilbrigt að hundruðir þúsunda Breta væru fljúgandi um himininn á hverjum degi, oft í leit að einhverju sem þeir geta allt eins fundið heima hjá sér. 

Líklega
, sagði ein kona, er bara ágætt að fá smá "reality check" á ruglið í okkur mannfólkinu.

Einn af eigendum stofunnar hljóp inn og út með appelsínudjús í glasi, sem ætlunin var að safna í ösku.  Djúsinn átti sem sé að auka líkurnar á að askan sæist.  Þegar "aska" fannst svo í glasi sem ekki hafði farið út, komst konan að því líklega væri þetta kusk af snyrtivörum á svæðinu. 
Hún hélt þó rannsókninni áfram - sumpart í gríni, en þó af svo mikilli alvöru að einn starfsmaður, sem ætlaði að setja grjóthnullung (lava rock) í glasið til að stríða, hætti við af ótta við afleiðingarnar.

Af öðrum vinklum sem nefndir voru, má telja erfiðleika sem þróunarlönd verða fyrir, fjárhagsvanda þeirra sem sitja fastir út í hinum stóra heimi, hörmungarnar sem fylgja myndu Kötlugosi og klikkhausar í fjölmiðlum sem virðast taka eldgosinu sem persónulegri móðgun.
Jú, og svo var nokkuð rætt um kvikmyndina 2012 - sem ku víst fjalla um tengd málefni.

Ekki varð ég var við minnstu óvild í garð Íslands eða Íslendinga vegna gossins.  Enda myndi slík tenging segja meira um viðkomandi en Íslendinga.

Á meðfylgjandi mynd sést hvernig Martin Rowson (Guardian) fléttar saman stórviðburðum síðustu daga - eldgosinu og kappræðum Clegg, Cameron og Brown (smellið til að stækka).
 
Gagnrýni (4)
1 17/04 2010 18:56
Léstu nokkuð snoða þig? En grínlaust, takk fyrir þessa greinargóðu lýsingu á viðbrögðum Englendinga. Hér heyrum við bara talað um klikkhausana!
2 17/04 2010 19:52
baldur
Ég spáði nú í því :-)

Spái alltaf í því þegar ég fer í klippingu, en man svo eftir hvað það var mikið sjokk þegar ég var einu sinni með hár niður á axlir og rakaði svo allt af niður á beran skalla.

Takk fyrir innlitið Margrét.
3 21/04 2010 23:00
Þú ert bráðvel skrifandi og skemmtilegur. Og hvessir augun á umhverfið og atburði líðandi stundar. Bara eitt aðfinnsluvert: Sagnorðið að spá stýrir þolfalli, ekki þágufalli; ég spái í það.
4 21/04 2010 23:37
baldur
Bestu þakkir fyrir það Guðrún, ég er ævinlega þakklátur fyrir ábendingar um villur í texta.

Fór reyndar beint í kerfisstjórnina og las þetta tiltekna blogg þrisvar yfir í leit að villunni - en fattaði svo að lesa athugasemdirnar :-)

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
viagra pills uk | viagra 100mg price | buy cialis | order viagra online | canada viagra | viagra professional | cialis sales | cialis no prescription | discount viagra online | cheap viagra | generic viagra canada | real viagra | cialis coupon | cheap viagra uk