Samkvæmt Telegraph búa stuðningsmenn David Miliband sig undir leiðtogabaráttu eftir kosningar næstkomandi fimmtudag. Byltingin gæti þá hafist á föstudagsmorgun.
Alan Johnson hefur verið orðaður við leiðtogasætið, en Telegraph telur Miliband eiga stuðning hans vísan.
The Foreign Secretary is understood to be confident he would have the support of Cabinet colleagues, including Alan Johnson, the Home Secretary, Tessa Jowell, the Olympics Minister, and Bob Ainsworth, the Defence Secretary.
(Telegraph 03.05 2010)
Ed Balls myndi þá líklega fara gegn Miliband, en hefði varla betur.
Ég vona Miliband og félagar láti til skarar skríða á föstudagsmorgun.
Þó ekki væri nema til að losna við endalausar vangaveltur um hverjir ætli að bylta, hvenær, hvernig og hvers vegna.
Sú umræða hefur skotið upp kollinum með reglulegu millibili frá því Brown tók við flokknum, en allar tilraunir í þá veru hafa endað með ósköpum.
Sniðugast væri þó ef Brown segði af sér í snarhasti, því samkvæmt reglum flokksins tæki þá varaformaðurinn sjálfkrafa við.
Harriet Harman.
That prospect has alarmed senior party figures, who are privately putting pressure on Mr Brown to “pre-announce” any post-election resignation, remaining in office until a permanent successor is elected.
(Telegraph 03.05 2010)
Furl
Facebook