Skemmtilegur pistill frá heiðarlegum hægrimanni. Mér hugnast ekki stefnan, en gagnrýnin á Laffer þvaður Hannesar Hólmstein er löngu tímabær.
Í huga hvers konar hægrimanns er það orðið lykilatriði að hámarka tekjur hins opinbera? Okkur hægrimönnum væri nær að tala fyrir þeim gildum sem raunverulega skipta okkur máli og hætta að reyna að fullnægja sjónarmiðum sem eru ekki okkar eigin. Það eru nefnilega þúsund góðar ástæður fyrir því að halda sköttum lægri en þeir eru í dag og Laffer kúrvan er hvorki ein þeirra, né ætti að vera það.
(Hafsteinn Gunnar Hauksson, 09.03 2010)
Hafsteinn er þó á villigötum, að mínu mati, þegar hann telur Hannes vilja hámarka tekjur hins opinbera. Trúlega er Hannesi nokkuð sama um þær.
Hannes er einfaldlega úlfur í sauðagæru. Hann vill við trúum að samfélagið græði óskaplega á lágum sköttum. Í hans huga er Laffer fyrst og síðast vopn í blekkingarleiknum.
Ekkert annað.
Furl
Facebook