Ég sé Illugi Gunnarsson víkur af þingi, rétt eins og Björgvin G. Sigurðsson. Um þetta ritar Jóhann ágætlega - og ég tek undir.
Ég tek reyndar líka undir athugasemd í þá veru að frí er frí - og afsögn er afsögn.
En rétt eins og ég ritaði um tilfelli Björgvins, er varla ráðlegt að ráðast að þeim sem þó eru að sína lit. Björgvin og Illugi víkja meðan mál þeirra eru rannsökuð - og ég efast satt að segja um meiri tilþrif séu í boði.
Gæti trúað Þorgerður fari svipaða leið; en vissulega gæti hún komið á óvart.
Svo má velta fyrir sér lista Hreyfingar. Sumum finnst þar hlaupið í öfgarnar - en ég er ekki viss. Sýnist í sjálfu sér ekki óeðlilegt að þeir víki sem sátu á valdastólum á tímanum rétt fyrir hrun - og í hruninu sjálfu.
Það er ekki eins og þetta hafi verið örklúður.
Ef markmiðið er að tryggja trúverðugleika alþingis, til langs tíma litið, hlýtur þingið að njóta vafans.
Þingmenn koma og fara.
-----
Í dag fór ég með mömmu, pabba og börnunum til Whitby, sem er smábær á norð-austurströnd Englands. Við fórum á ströndina, fengum okkur þjóðarréttinn, "fish and chips", og ætluðum svo að skoða Whitby Abbey - en það var því miður lokað.
Ég náði samt nokkrum myndum af klaustrinu með því að smeygja mér undir öryggiskeðju.
Smellið á myndir til að skoða - full stærð með smelli á kassann efst til hægri.
Furl
Facebook