Heim | Samband | Leit | Höfundur
Íhaldsflokkur í vanda - Slæmt lag
19/03 2010 00:48
Breski Íhaldsflokkurinn er í töluverðum vandræðum vegna meintra yfirhylminga um málefni Ashcroft lávarðar.

Fyrir forvitna er hér sérlega einfölduð forsaga. 

Milljarðamæringurinn Michael Ashcroft er hátt settur í Íhaldsflokknum, sem hann hefur styrkt um fimm milljónir punda, eða tæplega milljarð íslenskra króna, síðustu ár.  Ashcroft fékk lávarðatign árið 2000 og situr í efri deild breska þingsins.
Ashcroft var með skattalegt heimilisfesti* utan Bretlands, en lofaði að breyta því þegar hann hlaut lávarðartign, svo greiðslur færu í breska ríkiskassann eftirleiðis.

Um þetta ritaði Morgunblaðið á sínum tíma.

ÁKVEÐIÐ hefur verið að Michael Ashcroft, umdeildur auðkýfingur og gjaldkeri breska Íhaldsflokksins, fái lávarðartign gegn því skilyrði að hann hafi fasta búsetu í Bretlandi og greiði þar skatta. Ashcroft hefur fallist á þetta skilyrði, en hann hefur búið í Belís, fyrrverandi nýlendu Breta í Mið-Ameríku, og fyrirtæki hans hafa notið þar skattfríðinda.

William Hague, leiðtogi breskra íhaldsmanna, hafði lagt til að Ashcroft yrði gerður að lávarði. Kaupsýslumaðurinn er á meðal 33 manna sem tilkynnt var í gær að fengju lávarðstign.
(Morgunblaðið 01.04 2000)

Líkt og uppgötvaðist nýverið, stóð Ashcroft ekki við loforðið - og menn velta nú fyrir sér hve lengi merkismenn innan Íhaldsflokks hafa vitað af málinu.

William Hague, skuggaráðherra utanríkismála, hefur spilað sig sem saklaust fórnarlamb í hneykslinu, en í dag birtu fjölmiðlar skjöl sem gefa til kynna undanbrögð Ashcroft voru framkvæmd með vitund og vilja háttsettra flokksmanna.

William Hague was said to be aware 10 years ago of a deal struck by senior Tories that eventually resulted in Lord Ashcroft secretly remaining a non-dom after obtaining his peerage, according to official documents released today.
(Guardian 18.03 2010)

Talsmaður Hague hóf vörnina í kvöld; sagði Hague hafa afhent þáverandi þingflokksformanni (e. chief whip), James Arbuthnot, fullt umboð til að vinna í máli Ashcroft og honum hefði ekki verið kunnugt um einstaka þætti í útkomunni.

Miðað við fjárhagslegt mikilvægi Ashcroft sýnist mér sú afsökun ósennileg.

Áfallið kemur á vondum tíma fyrir Íhaldsflokkinn.  Síðustu 3-4 daga hefur allt verið að smella hjá Cameron, en fátt gengið upp hjá Brown.
Um 70% þátttakenda í viðhorfskönnun Guardian virðast telja málið hið vandræðalegasta og segja það muni að hafa slæm áhrif á kosningabaráttu Íhaldsflokks. 

Ekki að vefkannanir Guardian geti talist áreiðanlegur mælikvarði.

* Ég er óviss með þessa þýðingu, en finn ekkert betra.  Lord Ashcroft hefur sem sagt sloppið við að greiða skatta í Bretlandi sökum þess hann er non-dom[iciled] - hann er ekki með fasta búsetu í landinu, líkt og hann lofaði, heldur eitthvað sem kalla mætti "búsetu til langframa" (long term resident).

-----

Eftirfarandi hörmung var sérstaklega tilreidd fyrir kosningabaráttu frjálslyndra demókrata.  Myndi gera þá ókjósanlega, væri ég langrækinn.

Ekki oft sem ég er sammála Guido.




 
Gagnrýni (2)
1 19/03 2010 10:27
Nemo
En til er annar Íhaldsflokkur, tiltölulega skammt undan á jarðarkringlunni, sem ekki virðist í vandræðum útaf einhverjum "smáskandölum". Nú mælist Sjálfstæðisflokkur með yfir 40% fylgi í glænýrri skoðanakönnun.

Ætli þetta verði endanleg niðurstaða uppreisnar Íslendinga gegn alheimskapitalismanum sem svo rækilega var kynnt í aðdraganda hinnar miklu lýðræðishátíðar í formi þokukenndrar þjóðaratkvæðagreiðslu?
2 19/03 2010 10:59
baldur
Rétt.

Icesave skjaldborgin er að svínvirka.

Spillingin er hólpin - nú sem endranær, í boði kjósenda.

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
Error mysql!: Too many connections