Eftirfarandi eru tvær áhugaverðar hljóðskrár úr breskum miðlum. Báðar eru frá föstudegi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu.
Í fyrri hljóðskránni eru tvær klippur úr einum vinsælasta fjármálaþætti Breta, Wake Up to Money. Þar segir Birgitta Jónsdóttir, alþingismaður, þessa fyrstu (sic!) þjóðaratkvæðagreiðslu í sögu Íslands sérlega mikilvæga - rétt áður hafði hún útskýrt að annar svarmöguleikinn væri bilun (insane) og einn megintilgangur atkvæðagreiðslunnar væri reiðistjórnun fyrir Íslendinga (anger management).
Svo eru menn hissa að einstaka maður geri grín að Íslandi.
Hins vegar tekur Birgitta af allan vafa hvað greiðsluna til Breta varðar. Hún ítrekar að Íslendingar ætli að greiða allt tilbaka, en vextir og útfærsla séu til umræðu.
Íslenskir stjórnmálamenn hafa reyndar stundað það lengi að ljúga í útlendu útvarpi - en í ljósi þess Birgitta var kosin inn á þing til að siðvæða íslensk stjórnmál, geri ég ráð fyrir hugur fylgi máli.
Wake Up to Money - BBC Radio 5 - 05.03 2010
Seinni hljóðskráin er hlaðvarp (podcast) úr safni Economist. Þar má heyra Breta horfa til Skandinavíu til að átta sig á Íslandi.
Economist Podcast: All Audio - 05.03 2010
Í kjölfar atkvæðagreiðslu heyri ég marga tjá þá skoðun að samningsstaða Íslands sé betri en nokkurn tíma fyrr. Það kann að vera rétt. En ég vek jafnframt athygli á að því oftar og hærra sem "talað er máli Íslands", því fleiri fá áhuga á málinu og vilja kynna sér á eigin forsendum. Niðurstaðan passar ekki endilega við þann "sannleika" sem Íslendingar vilja halda á lofti.
Slíka sprota má þegar sjá, t.d. í þessum ítarlega bloggtexta um vanda Íslands.
Ég sat við skjáinn í gær, þegar Alistair Darling talaði um Ísland (Politics Show). Þar virtist hann jafnvel vera að verja Íslendinga gegn gráðugum fréttamanni. Þó við vitum e.t.v. betur, virtist Darling vera annálað góðmenni.
Nú reynir á hvort Íslendingar skynji hina hárfínu línu milli fórnarlambs* og frekjudollu. Skynji hve hættulegt það er að bregðast við af hörku, nú þegar Bretar hafa mætt með ákveðna mýkt í málið.
Ef stjórnarandstaða ætlar sér inn á alþingi með Icesave, í því skyni að afneita allri ábyrgð, þvert á orð forseta, Birgittu og flestra þeirra sem að málinu hafa komið, hverfur samningsstaðan á augabragði.
Fórnarlambið* verður frekjudolla.
* Viðhorf sem margir vilja sé ráðandi.
Furl
Facebook
Það færi væntanlega eftir því hvort um sé að ræða réttlátar (og viðráðanlegar) skuldir.
Var þeirri spurningu svarað síðasta laugardag hvað Icesave varðar?
ES. Það sem þú minnist á, skiptir því miður litlu máli. Það hvort mér finnist það frekja eða ekki, skiptir svo jafnvel enn minna máli.
Allir sammála að borga en stjórnarandstæðan vill ekki semja.
Það kom berlega í ljós í Silfrinu í gær hver hugur Bjarna og Sigmundar er.
Bjarni vill á þing til að bjarga vinum sínum, kvótagreifunum og Sigmund langar í meiri völd.
Og skrípaleikurinn heldur áfram.
Þarf að lesa betur, en eins og þú nefnir þá er þetta dáldið mikilvægt atriði. Margir fara að skoða málið og hvernig það liggur o.s.frv. og þá kemur í ljós að það er allt öðruvísi en skylda er að bera á borð á íslandi jafnt sem erlendri grundu.
Furðuleg hugmynd íslendinga að halda að það það þýði eitthvað fara fram með ósannindi, ýkjur og hálfýkjur og bera á borð fyrir heimsbyggðina.
Líklega er það framhad af ísl. hefðinni, því eins og menn vita skiptir oft ekki máli hvernig hlutirnir raunverulega eru á íslandi heldur hvernig það er í propagandanu. Dæmi um það er td. hérna deilan fyrr á árum um að skattar hefðu lækkað - þegar þeir höfðu beisiklí hækkað etc.
Meir að segja svonefnt Ragnars Hall - ákvæði um ofurforgang etc.
Já, Ómar, þetta er athyglisvert blogg. Ég veit ekki hver stendur að baki því, en er hrifinn af eftirfarandi:
"RebelEconomist has been an academic, central banker and fund manager in his time, but the ideas presented here should stand on the strength of the supporting logic and evidence rather than the author’s credentials.
Það kom berlega í ljós í Silfrinu í gær hver hugur Bjarna og Sigmundar er.
Bjarni vill á þing til að bjarga vinum sínum, kvótagreifunum og Sigmund langar í meiri völd.
Svo hanga þeir á hinu verðmæta Icesave rifrildi eitthvað áfram, þar til þeir hafa komið sér og sínum þægilega fyrir - og semja svo eins og skot.
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
Clearly, to some extent, the EEA’s single market regulations contributed to the Icesave problem, by clearing the way for some banks to operate in the larger European economies with minimal scrutiny from those economies’ relatively well-resourced and experienced regulators, so there is a case for sharing the cost of compensating Icesave depositors across the whole EEA.
En ég gef ekkert upp hvort ég sé sammála tilvísuðu :-)
Sé að þú hefur ritað fínan bloggpistil um málið; Hvernig skyldi Kjartan Gunnars hafa greitt atkvæði.