Ekki er laust við maður gerist spenntur fyrir fimmtudeginum, en þá munu leiðtogar stærstu stjórnmálaflokka Breta takast á í sjónvarpskappræðum - hinum fyrstu sinnar tegundar hér.
Það skyggir þó á spennuna að Brown og Cameron hafa sett á svið leikrit; það sem fólk vill helst vita, er einmitt það sem þeir þegja um.
Voters have delivered a damning verdict on the economic promises of both Labour and Conservatives, with two out of three people believing Gordon Brown and David Cameron are being dishonest about how they would reduce the deficit.
(Independent 11.04 2010)
Eftir augnabliks heiðarleikastef í upphafi, er kosningabaráttan farin að snúast um hliðarfróðleik og vanhugsaðar gjafir.
Skattaafsláttur til hjóna og lenging fæðingarorlofs eru dæmi um góðærisloforð í miðri kreppu. Göfugt í sjálfu sér, a.m.k. hið síðarnefnda, en snertir ekki á stóra vandanum.
Kosningabaráttan gerist mjög óþolandi.
Furl
Facebook