Loka þarf gati upp á 163 milljarða punda og svona ætla flokkarnir að mæta þörfinni:
Íha - niðurskurður: 80% skattar: 20%
Ver - niðurskurður: 67% skattar: 33%
FrD - niðurskurður: 71% skattar: 29%
En hvað á að skera niður og hvaða skattar verða hækkaðir?
Þar liggur vandinn og IFS gagnrýnir harðlega hve litlar upplýsingar flokkarnir veita.
Þetta er sérlega áberandi varðandi niðurskurðinn, hvar Íhaldsflokkur tilgreinir ekki 52.5 milljarða af 63.8 milljarða boðuðum niðurskurði.
Verkamannaflokkur og Frjálslyndir eru síst skárri.
Á skýringarmynd IFS hér að neðan sýna stóru gráu svæðin niðurskurð sem ekki hefur verið tilgreindur, en lituðu svæðin neðst sýna niðurskurð sem flokkarnir hafa upplýst um.
Ábending IFS kemur á hárréttum tíma. Síðustu kappræður fyrir kosningar eru næstkomandi fimmtudag og þar verða efnahagsmálin rædd.
Í tvær vikur hafa fjölmiðlar einblínt á sterka stöðu Frjálslyndra demókrata - kastljósinu má nú beina að öðrum og mikilvægari málum.
En flokkarnir sitja uppi með skömmina - mér sýnist flestir helstu fjölmiðlar slá upp meintum óheiðarleika á forsíðum morgundagsins.
Independent krefst sannleika!
Forstjóri IFS, Robert Chote, viðurkenndi í fréttaþættinum Newsnight fyrr í kvöld að flokkarnir gætu varla birt nákvæmt yfirlit um hvar yrði skorið niður - en hér væri of langt gengið í feluleiknum.
Því verður varla mótmælt.
Furl
Facebook
Hvað Ísland varðar....vantar ekki bara að koma Þjóðhagsstofnun á fót aftur og tryggja algert sjálfstæði hennar?