Heim | Samband | Leit | Höfundur
Meintur hestaþjófur
09/03 2010 00:41
Fyrr í dag - eða gær, svo maður sé nákvæmur, rölti ég upp í hæðina fyrir ofan bæinn í dásamlegu veðri. 

Tók með mér myndavél sem ég fjárfesti í nýlega (Canon EOS 450D).  Þetta ku vera þokkaleg vél fyrir áhugaljósmyndara, en ég hef því miður gleymt miklu af því sem ég áður kunni.  Eitthvað á ég af ljósmyndabókum og þarf að leggjast yfir þær.

Þegar ég tók myndir af hestunum sem sjást hér neðar, kom eigandinn áhyggjufullur og spurði hvers vegna ég væri að mynda hestana hans.  Pollrólegur útskýrði ég göfugt hlutverk áhugaljósmyndara í veröldinni - að þeir væru sjaldnast að taka myndir "til" einvers, en eiga sér kannski lítinn draum um stóra mynd.

Bóndinn skyldi þetta mætavel, en sagðist þó hafa áhyggjur af þessu uppátæki mínu, því hestaþjófar hefðu haft sig í frammi síðustu mánuði.

Ég sýndi honum skilríki - og útskýrði, aðspurður, að Baldur væri íslenskt nafn.  Lét fylgja með að ég væri ekki bankastarfsmaður, en ef hann rækist á slíka - frá Íslandi - skyldi hann hafa gætur á hestunum.  Svona til að létta andrúmsloftið.

Bóndinn varð nú allur hinn þægilegasti og sagði mér af ferð foreldra sinna til Reykjavíkur.  Benti mér svo á hóp af nýfæddum lömbum á næsta akri og hvatti mig til að taka myndir af þeim líka.  Sem ég gerði (þær voru allar arfaslakar).

Smellið á mynd til að stækka.
gu_march2010
 
Gagnrýni (1)
1 09/03 2010 16:11
Magnús
Flottar myndir hjá þér Baldur! :)

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
Error mysql!: Too many connections