Í Íslandsheimsókn, árið 1973, á Nixon að hafa misst út úr sér að staðurinn væri "God forsaken", í þann mund hann steig úr flugvélinni. Sem segir líklega meira um umhverfið kringum Keflavíkurflugvöll, en Ísland.
Ummælin fengust aldrei staðfest, en að því gefnu sagan sé sönn, hafði Nixon alltént vit á að vera ekki með slíkar yfirlýsingar í eyru gestgjafa.
Gordon Brown sýndi í raun sömu varkárni fyrir Bigot-gate hneykslið, sem skekur nú Verkamannaflokkinn í Bretlandi, en endaði samt sem fórnarlamb tækninnar. Þráðlaus hljóðnemi útvarpaði því þegar hann skammaðist yfir erfiðum viðmælanda, frú Gillian Duffy, og sagði hana fordómafulla. Brown taldi sig eiga einkasamtal við aðstoðarmann, en köpuryrðin fóru "í loftið".
Yfir þessu hefur verið fárast mikið í dag - töluvert meira en tilefni er til, að mínu mati.
Á vefsíðu Lexalytics má sjá tilfinningar Twitter notenda í garð Brown eru neikvæðari en þær hafa áður mælst (via).
Spurningin er svo hvort neikvæðnin lifi og valdi Verkamannaflokki skaða í kosningunum.
Andstæðingar flokksins telja sig vissulega hafa himinn höndum tekið og vilja eflaust halda hneykslinu á lífi. Einn af skemmtilegri íhaldsbloggurum Breta, Guido Fawkes (Paul Staines), smellti eftirfarandi athugasemd á Twitter.
At this moment Cherie and Tony are on a yacht somewhere sunny, sipping chilled wine and crying with laughter.
(Guido Fawkes 28.04 2010)
Já, ætli það ekki bara?
* Myndin af fréttinni er úr blaðinu Reading Eagle, 31.07 1973
Furl
Facebook