Upp er risin ný Financial Times hetja. Í þetta sinn er það einn af ráðgjöfum skoska þjóðarflokksins í efnahagsmálum, John Kay.
Sem ráðgjafi dásamaði Kay íslenska efnahagsundrið og leit á sem fyrirmynd fyrir Skota. Eftir hrun benti hann á Ísland sem sönnun þess að ekki borgaði sig fyrir Skotland að kljúfa sig frá Englandi.
Egill Helgason kallar John "einn þekktasta hagfræðing í heimi", sem kann að vera rétt. Hann er í öllu falli frambærilegur eftiráspekingur.
Svona horfði Kay á Ísland örfáum mánuðum fyrir hrun.
Iceland has shown dramatically the impact of globalisation-if a country lives only on fish and does not participate in the world economy, it is poor, but if it globalises into the world economy, it becomes very rich. Iceland epitomises the phenomenon. Specialisation has enabled small states to become, through globalisation, the most prosperous states in the world. That is the way in which we need to think about an approach to the development of Scotland's economic performance.
(John Kay, 22.02 2008)
Eftir hrun skipti hann um skoðun. Ísland var of lítið til að vera sjálfstætt.
It’s much easier for small countries to mess up in times of economic instability. Take Iceland . . . it is the best poster-child for small countries that can’t go it alone.
(John Kay, 19.10 2008)
Ég leyfði mér að benda honum á eigin orð í athugasemdakerfi FT - í fullri kurteisi, að sjálfsögðu. Því var eitt eytt út eftir hálfa klukkustund.
Þar var einnig Íslendingur, sem tók undir sjónarmið Kay, en vogaði sér þó að benda á að endurheimtuhlutfallið gæti orðið hátt, svo heildarupphæðin myndi líkast til ekki lenda á þjóðinni. Þeirri athugasemd var eitt eytt út.
Eftir standa athugasemdir sem lofa framtakið.
Allt eins og það á að vera.
Furl
Facebook
Rétt eins og Kay, kann ég að meta athugasemdir sem lofa framtakið....lofa þó að leyfa öðrum að standa líka :-)
Egil hinsvegar virðist hafa hæfileika til þess að benda á þá sem tala froðu sem fjallar vel um íslendinga, en setja í raun enga gagnrýni fram.
Ég missti algjörlega álitið á því hvernig mannþekkjari Egill Helgason er, eftir að hann tók Max Keiser í viðtal og bar hann fyrir þjóðina eins og þetta væri einhver virtur og frambærilegur maður.
Hann er það kannski ef þú spyrð tepokalýðin sem horfi ekki á annað en FOX news, en ég hafði vonað að Egill væri víðlesnari.