Pressan fer mikinn í dag og fullyrðir ofurkonan Gillian Duffy sé "ein síns liðs að rústa kosningabaráttu forsætisráðherrans", Gordon Brown, og sé þar með að reynast "einn mesti áhrifavaldur breskra stjórnmmála í langan tíma".
Gífuryrðin eru réttlætt með tilvísun í kannanir sem sýna Íhaldsflokkurinn bætir við sig fylgi! Mörgum mun þykja það undarleg tenging - ekki síst í ljósi þess fylgi Verkamannaflokks hefur yfirleitt staðið í stað eftir atburðinn; rís hér og fellur þar.
Reyndar er ekki nóg með að fylgi Verkamannaflokks sé óbreytt í kjölfar Bigot-gate, heldur er álit almennings á kosningabaráttu Browns nákvæmlega jafnlítið og áður.
Clegg remains ahead of Cameron, 33% to 30%, as the party leader who is campaigning best. But his lead over Cameron has slipped from nine points to three since last week. Brown's rating is unchanged on 17%, apparently unaffected by his comments in Rochdale.
(Guardian 02.05 2010)
Sem sagt, æsifréttamennska Pressunnar stýrist hvorki af staðreyndum né skynsemi, heldur einhverju allt öðru. Kannski ásókn í lesendur?
Vel má vera Bigot-gate muni hafa einhver áhrif á fylgi Verkamannaflokks, en í dag eru þau vandfundin. Gillian Duffy, eins ágæt og hún kann að vera, er hvorki að "rústa kosningabaráttu forsætisráðherrans", né ávinna sér sess sem "einn mesti áhrifavaldur breskra stjórnvalda í langan tíma".
Að fá lesendur skiptir vissulega máli fyrir fjölmiðil, en einhverju hlýtur að skipta að fréttamenn segi satt og rétt frá.
Meira að segja þegar skrifað er um erlenda atburði.
Furl
Facebook
Það gott að geta verið með sinn eigin framsóknarfjölmiðil !
Getur verið að það se´eitthvað ,,copy/paste" á ferðinni ?
En fréttin virkar nú varla sem rök gegn því sem ég rita.
Svarendur segja þetta hafi verið lélegt hjá Brown, Duffy sé ekki fordómafull, innflytjendur skapi ákveðin vanda og það verði að vera hægt að ræða málin án upphrópana. Svo fátt eitt sé talið.
Ég get tekið undir flest af því. Ekki málið.
En eftir stendur - þrátt fyrir yfirlýsingaglaða lokasetningu - að skoðanakannanir sýna ekkert sem réttlætir gífuryrði Pressunar.
Það að Labour sé að sigla í versta ósigur frá 1918, segir, eðlilega, ekkert um hvort Duffy hafi haft áhrif innan þessarar kosningabaráttu. Brown var á sömu siglingu fyrir atburðinn.
Það er reyndar sniðugt að vísað er í BPIX í fréttinni, en hjá þeim hefur Brown (Verkamannaflokkur) farið upp um prósentustig frá síðustu mælinu ;-)
Sem gefur þá væntanlega til kynna Duffy sé að "bjarga kosningabaráttu forsætisráðherra" (ef maður væri jafn stóryrtur og blaðamaður Pressunar).
Hitt er líklega rétt að þú hefur fundið fréttina sem Pressan studdist við - í sjálfu sér ekki hægt að skammast yfir því þeir vilji feta í fótspor Daily Mail.
En hefði nú ekki verið ágætt að leggjast í örlitla skoðun á könnunum og þess háttar - og reyna stilla yfirlýsingunum í hóf?
Hafa þetta örlítið betur tengt við raunveruleikann eins og hann blasir við í dag?
Nú veit ég ekki hvort Pressan sé Framsóknarmiðill né hvort hann yrði verri fyrir vikið ;-)
Þeir pikka stundum upp áhugaverðar fréttir sem fáir aðrir segja frá, en groddafengnar fyrirsagnir þeirra fæla mig yfirleitt frá. Virka örvæntingafullar.....líkt og lesendaveiðin sé allt sem kemst að.
Ég missti reyndar af viðtalinu sem þú talar um - hef flest betra við tímann að gera en að lesa um Halldór.
Hvað um það. Maður á kannski ekki að kvarta yfir fjölbreytni á þessum markaði.