Sitthvað vantar í þessa frétt á visir.is. Þannig væri gott að upplýsa um ástæðu þess FME neitar að senda fulltrúa til nefndarinnar.
Fjármálaeftirlitið íslenska (FME) hefur neitað beiðni um að senda fulltrúa frá sér til að vitna fyrir hollenskri rannsóknarnefnd um orsakir fjármálakreppunnar.
(visir.is 15.01 2010)
Væntanlega er um að ræða sama Holland og íslensk stjórnvöld vilja fá, enn og aftur, að samningaborðinu?
Hvað veldur því að FME neitar því kostaboði að aðstoða nefnd sem hefur það hlutverk að grafast fyrir um orsakir fjármálakreppunnar og koma í veg fyrir slíkar hörmungar endurtaki sig?
Á vefsíðu eftirlitsins er enga frétt að finna, sem skýrir ákvörðunina.
-----
Ég hef bitið í tunguna undanfarið, varðandi ákveðið mál, og held því áfram. Bendi þó á góða grein Pawel Bartoszek og vangaveltur Stefáns Pálssonar.
Vefsíða Disasters Emergency Committee.
Furl
Facebook
Þórkatla Snæbjörnsdóttir á mogga blogginu.
( kann ekki að vsísa í færslur eis og þú gerir )
Ótrúleg færsla. Passaðu bara að bíta ekki af þér tunguna, mér varða óglatt.
Kv. G.H.
Takk fyrir það G.H., ég læt fyrirsögnina duga; höndla þetta illa og gæti einmitt bitið af mér tunguna.