Það má hafa finna spaugilegar hliðar á Icesave, ef vel er að gáð.
Þannig er sniðugt að þjóðin, sem vöruð var við háskanum í tugum erlendra fjölmiðla, án þess það breytti nokkru um atburðarásina, skuli nú (*) ætlast til þess að örfáar blaðagreinar muni breyta því hvernig veröldin virkar. Hinir "öfundsjúku" eru nú orðnir hálf-guðir.
Einnig er sniðugt að þjóðin, sem allt frá aldamótum hefur verið vöruð við stigvaxandi skuldasöfnun, án þess það hefði nokkur áhrif á lifnaðarhætti, skuli nú (*) vera endurskapa sig sem leiðandi afl í baráttunni gegn kapitalisma.
Að síðustu er sniðugt að þjóðin sem fyrirleit hverslags mótmæli, skammaðist út í fréttamenn sem spurðu of erfiðra spurninga og sagði ekkert þegar forsætisráðherra gerði sig að seðlabankastjóra, skuli nú (*) tala líkt og hún standi flestum framar í heilbrigðum og réttlátum lýðræðisháttum.
Allt er þetta óborganlega sniðugt að mínu mati.
Allt er þetta óborganlega sniðugt, en meðan lýðræðiselskandi and-kapitalistar liggja yfir alheimsbreytandi blaðagreinum, gleyma þeir alveg að fjalla um hin ýmsu málefni sem eru jafnvel mikilvægari en nýuppgötvuð ímynd Íslands.
Þar má nefna fjárstyrki til stjórnmálaflokka; en um nýlega stórfrétt á því sviði var fjallað í einn dag, samkvæmt hefðinni.
Sem sýnir svo aftur að þrátt fyrir alheimsbreytingar, and-kapitalisma og lýðræðisást, er allt eins á Íslandi.
Nema fronturinn.
* Sumir
Furl
Facebook
Að nú skyndilega hata allir banka, í þjóðfélagi þar sem sjálfseignastefnan erdýrkuð einsog trúrarbrögð. Stenst ekki skoðun.
En ólíkt öðrum skemmtilegum svívirðingum frá þér, má finna margt í þessari sem er fullkomlega rétt. Ég mun því taka hana til mín og velta fyrir mér.
Takk fyrir það.
Þakka þér einnig fyrir athugasemdina Harry.
Ég er gjörsamlega sammála því að 'Buyer Beware' enda er ég mikill frjálshyggjumaður.
Ég gerði mér grein fyrir því að innistæður mínar á Íslandi væru aðeins tryggðar uppað 3 milljónum. Þessvegna dreifði ég eignum mínum.
En hvers vegna gildir ekki það sama um alla íslendinga? Afhverju voru skattgreiðendur látnir ábyrgjast að fólk á íslandi fengi allt sitt tryggt, þótt það ætti mörg hundruð milljónir inná bankareikningum?
Eeehhhhh.......já.
:-)