Heim | Samband | Leit | Höfundur
Til hamingju, Indefence og 70%
05/01 2010 11:42
Ákvörðun Ólafs setur allt úr skorðum á þessu bloggi!

Ég hafði ritað ágætt blogg sem birtast átti í kjölfar undirskriftar, en er nú fullkomlega óundirbúinn.  Vont er það.

Í fljótu bragði þetta.

Ég sendi 30% þjóðarinnar samúðarkveðjur vegna þessarar deilu, sem meirihlutinn hefur nú ákveðið skuli magna upp og halda áfram - og tefja þar með alla uppbyggingu á Íslandi.

Nú stoðar ekki að garga á stjórnmálamenn ef illa gengur.  Þjóðin hefur nú, í óþökk áðurnefnds minnihluta, tekið alla ábyrgð á framhaldinu.

Allt - og þá meina ég allt - sem á eftir kemur, skrifast á reikning 70% Íslendinga.  Og Indefence, að sjálfsögðu.

Ég ætla í langt bað áður en ég rita meira um málið - en mun svo snúa þessu bloggi, að mestu, að öðrum hugðarefnum.

Lygveldið Ísland mun ég rita um á öðrum vettvangi, á enskri tungu, því "málstaðinn" þarf vissulega að kynna.

Til hamingju, Indefence.  Til hamingju 70% Íslendinga. 

Ykkar er dagurinn.

Sjáum svo til með kvöldið.
 
Gagnrýni (11)
1 05/01 2010 11:55
Ég er með einstaklega blendnar tilfinningar með þetta allt, vonaðist eftir undirskrift svo þessu yrði ýtt í burtu til að hægt væri að einbeita sér að brýnni málum, svona skárri af þessum tveimur vondum kostum.

Ljósi punkturinn við þetta er það þó að nú verður þjóðin að kjósa um þetta og hún getur aðeins sjálfri sér kennt um afleiðngarnar,þýðir ekkert að grenja undan því.

Verst er að ég óttast að InDefence hafi tekist ætlunarverk sitt, að koma Sjálfstæðisflokknum og Framsókn til valda að nýju, nokkuð sem er mun verra og hörmulegra fyrir íslensku þjóðina en nokkurn tímann IceSave.
2 05/01 2010 12:13
Ég er fluttur frá Íslandi við fyrsta hentuga tækifæri, hvernig svo sem ég fer að því.

Nenni ekki að búa í kjánalandi lengur. Internetið sér til þess að ég get sinnt jarðskjálftaáhugamálinu annarstaðar í heiminum án vandamála.
3 05/01 2010 13:24
Einar
Þessi undirskriftarlisti indefence er eitthvað skrítinn. Hér á 40 manna vinnustað hafði aðeins einn skrifað undir. Í jólafjölskylduboði sem ég var í hafði 1 af 30 skrifað undir. Í mínum vinahóp hafa 2 skrifað undir þrátt fyrir fjöldann allan af vinstri og hægri mönnum, af þeim sem ég hef spurt.

ENGINN hafði athugað hvort hann væri skráður.
4 05/01 2010 16:15
Þeir sem telja að lýðurinn sé of vitlaus til að ráða verða að reyna að draga úr lýðræðinu á komandi stjórnlagaþingi eða kjósa sér nýja þjóð í anda Betrolt Brecht.
5 05/01 2010 16:27
baldur
Hvaða lýð ertu að tala um Héðinn?

Þann sem helst hefur gólað sér til afsökunnar að hafa verið blekktur síðustu áratugi?

Því ef þú ert að tala um þann lýð, skal ég fyrstur manna fullyrða hann er of vitlaus til að ráða.

Klárlega.
6 05/01 2010 21:34
GH
Ég held að gott betur en 30% manns sé arfavitlaus yfir þessu rugli í forsetanum. Hann hefur engan meirihluta þjóðarinnar á bak við sig.
Ég hef séð nokkra facebook-statusa þar sem forsetanum er þakkað fyrir að "koma í veg fyrir að við þurfum að borga skuldir óreiðumanna". Frekar kjánalegt og greinilega algjör misskilningur. Aðrir statusar og miklu, miklu fleiri lýsa frati á þessa kolröngu ákvörðun forsetans. Ég er brjáluð út í karlinn og finnst þetta mesti sorgardagur hrunsins.
7 05/01 2010 21:42
Grímur

Allt úr skorðum á bloggi Baldurs McQueen!

Afleiðingar synjunar forseta alvarlegri en talið var í fyrstu
8 05/01 2010 22:00
Ingi
Tekist ætlunarverk sitt að knésetja ríkistjórnina það hefði nú ekki farið svo ef Steingrímur J hefði athugað með annan samning og áttað sig á hversu slæmur þessi var í raun og veru þá væri staðan nú ekki svona í dag !
9 05/01 2010 22:43
baldur
Takk, Grímur. Ég var nú að vona þetta birtist í fjölmiðlum, enda grafalvarlegt mál. En fyrirsögnin þín er feitletruð og það dugir mér :-)

Ingi. Já, kannski. Þess vegna er mikilvægt að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur taki þegar við stjórn landsins og sýni landsmönnum hvernig á að fara að þessu.
10 05/01 2010 22:45
baldur
Fyrirgefðu GH, sá þig ekki þarna uppi.

Já, þetta kann að vera rétt hjá þér. Það kemur þá í ljós í atkvæðagreiðslunni.
11 05/01 2010 23:20
NN
Himnarnir eru að hrinja! Það er ekkert! ekkert! hægt að gera í efnahagsmálum næstu tvo mánuði.Vitringarnir geta bara unnið að einu í einu.

Mikið er ömurlegt að heimskur lýðurinn fái að kjósa. Hann á að hlýða vitringunum. Þeir voru reyndar búnir að gefa kosningarloforð um þjóðarkosningar en alls ekki um þetta mál.

Lifi lýðveldið!

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
viagra 100mg price | cialis coupon | cialis sales | viagra pills for sale | canada viagra | cialis no prescription | viagra professional | generic viagra no prescription | buy cialis online | discount viagra online | order viagra online | real viagra | cheap viagra uk | cheap viagra uk