Heim | Samband | Leit | Höfundur
Vinsældaleit Ögmundar
09/03 2010 12:14
Ég sé Ögmundurarmur VG er um það bil á sama stað og hann hefur verið síðustu mánuði.  Í vinsældaleit á sem flestum vígstöðvum.

Ögmundur klófestir aðdáun til hægri fyrir að vera hæfilega á móti Icesave samkomulagi, en sinnir vinstri vinsældum með því að hleypa ekki öðrum flokkum að.

Þeir sem alfarið vilja hafna Icesave, eða gera mun ítarlegri kröfur, fá ekki til þess tækifæri meðan Ögmundur púkkar upp á stjórnina.  En um leið og Ögmundur ver stjórnina falli, vinnur hann kröftuglega gegn því hún nái árangri - og virðist vilja gera mun ítarlegri kröfur.  Hvílík endaleysa.

Þetta finnst (mörgum) kjósendum óskaplega smart og til vitnis um gífurlegan heiðarleika Ögmundar.

Það sem Steingrímur J. Sigfússon þarf að gera núna, er að setjast niður með Ögmundararmi VG og fá greiningu á stöðunni.  Hvað, nákvæmlega, vill það fólk fá úr samningaviðræðum?  Hvað sættir það sig við - og hvað ekki?

Ef Steingrímur metur kröfur þeirra óraunhæfar, ber honum að ljúka þessu stjórnarsamstarfi.  Þjóðin á þetta ekki skilið.

Ögmundur mun aldrei gera slíkt að eigin frumkvæði.

Því það yrði erfið ákvörðun og óvinsæl meðal margra.
 
Gagnrýni (7)
1 09/03 2010 13:25
ES
Ekki gleyma Ásmundi. Við fáum ekki nákvæma greiningu á stöðunni fyrr en að lánabók Landsbankans hefur verið birt.
2 09/03 2010 13:58
Sammála.

Orðinn ískyggilega þreyttur á þessu ögmundar-argaþrasi.
3 09/03 2010 16:12
Sverrir
Ögmundur hefur tamið sér að vera með hnífinn í bakinu á samherjum sínum í Vinstri-grænum. Á sama tíma vottar hann Sigmundi Davíð og Framsóknarflokknum aðdáun sína með reglulegu millibili.

Er ekki tímabært fyrir hann og aðdáendur hans að stíga skrefið til enda og hætta að tuddast á samherjum sínum?
4 10/03 2010 00:51
Heiður
Ömmi verður að tryggja sér sæti í næstu ríkistjórn með LÍÚ Sjöllum sem verður mynduð til að efla þjóðarreming og gegn aðild Íslands að ESB.
það verður ekki líft hér á landi þegar þessi öfl komast til valda og vittu til Íslandingar eiga eftir að kokgleypa við þessu.
5 10/03 2010 01:24
Þetta er ekki alveg svona einfalt. Ef mínar heimildir eru rétta, en ég tel þær nokkuð traustar, þá virðir Steingrímur Ömma og sér í lagi Liju Móses ekki viðlits. Svo spurningin er hver er að sniðganga hvern? Það eru ekki miklir leiðtogahæfileikar fólgnir í því að gera allt sjálfur, spila sóló. Þar eru fleiri sekir en Ömmi.

VG er að sanna sig sem gersamlega óstjórntækur flokkur
6 10/03 2010 10:03
Benedikt
Ögmundur er alltaf að tala um samstöðuna sem hann reyndi á sjálfum sér og sínu liði síðasta haust þegar Sjálfstæðisflokkurinn sat hjá við afgreiðslu Icesave frumvarpsins 28. ágúst 2009. Hann getur ekki verið svo barnalegur að hann trúi því að stjórnarandstaðan fáist til samstöðu og samstarfs. Slíkt er af og frá. Hann er að nota andstöðu sína og félaga sinna til að berjast gegn þeim málum í stjórnarsáttmálanum sem honum persónulega líkar ekki við.
7 10/03 2010 12:12
Jam hvað sem er, þá er allavega erfitt að trúa að Ömmi sé svona ansk. vitlaus eis og framganga hans virðist gefa í skyn.

Hlýtur að liggja þarna etthvað óþekkt að baki.

Líklega hafa sjallar boðið honum forsætisráherrastólinn í sumar.

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
Error mysql!: Too many connections