Líkt og sjá má hér að neðan bætir flokkurinn alls staðar við sig, nema hjá BPIX, en þar stendur hann í stað.
Verkamannaflokkur tapar hér og vinnur á þar, en allar breytingar á fylgi Frjálslyndra demókrata eru niðurávið.
Meðaltalið á þessu er einhvern vegin svona: Íhaldsflokkur 35.6%, Verkamannaflokkur 26.8% og Frjálslyndir 27.8%.
Sem sagt yfirburðastaða hjá íhaldinu.
En þó er þetta ekki algott fyrir Cameron.
Samkvæmt UK Polling Report myndu eftirfarandi niðurstöður allar leiða til meirihlutaþurrðar (hung parliament).
Ef niðurstaðan verður líkt og YouGov spáir fengi Íhaldsflokkur 284 sæti, ComRes gæfi honum 315 sæti, ICM 275, BPIX 264 og Angus Reid 310.
YouGov/Sunday Times
Íha 35% (+1)
Ver 27% (-1)
Frj 28% (eb)
ComRes/S.Mirror/S.Indy
Íha 38% (+2)
Ver 28% (-1)
Frj 25% (-1)
ICM/Sunday Telegraph
Íha 36% (+3)
Ver 29% (+1)
Frj 27% (-3)
BPIX/Mail on Sunday
Íha 34% (eb)
Ver 27% (+1)
Frj 30% (eb)
Angus Reid/Sunday Express
Íha 35% (+2)
Ver 23% (eb)
Frj 29% (-1)
Til gamans set ég hér gott graf sem sýnir skoðanir kjósenda varðandi stóru flokkanna þrjá, allt frá 2005. Hér sést ágætlega hve Frjálslyndir demókratar hafa unnið mikið á undanfarið.
Ef engar stórar breytingar verða, geta Frjálslyndir skammlaust kynnt sig sem "sigurvegara" kosninganna, líkt og hefð er fyrir hjá öllum flokkum.
Heimild: UK Polling Report, sótt 01.05 2010
Furl
Facebook