English Passengers (Matthew Kneale) er stórkostleg bók. Sannarlega frábær. Hún fjallar um prest sem sannfærist um að frásögn Biblíunnar af staðsetningu Eden skuli taka sem n.k. gildru - garðinn sé í raun að finna í Tasmaníu (Van Diemens Land). Tilviljun haga því svo að presturinn fær styrk frá auðmanni til að finna Eden og í förina slást 2 aðrir sérfræðingar (á sínu sviði). Ferðalangarnir þrír eiga sérlega illa saman og auka samskipti þeirra töluvert á skemmtilegheit/spennu sögunnar. Ekki spillir "Captain Illiam Quillian Kewley" fyrir, en það er skipstjórinn (smyglari) sem tekur að sér að koma þeim á staðinn.
Stórskemmtileg saga með fjölmarga vinkla sem ræða mætti sérstaklega. Þannig er í raun ofsagt að aðalsöguhetjan sé presturinn - því stórum hluta bókarinnar er varið í sögu ættbálks í Tasmaníu og hroðalega meðferð breska heimsveldisins á frumbyggjum á þessum slóðum.
Einstaklega góð bók. Mæli með því að nöfn og stuttar skýringar á hverri sögupersónu séu skráð á saurblað meðan fyrstu kaflar eru lesnir - því flakkið er mikið í upphafi og mikilvægt að fylgjast með.
Furl
Facebook