Half of a Yellow Sun (C.N. Adichie) er gríðarlega áhrifarík skáldsaga, byggð á raunverulegum atburðum. Sögusviðið er Nígería á þeim tíma sem Biafra var stofnað - og hrundi skömmu síðar. Sagan er annars vegar sögð frá sjónarhorni ungs manns, Ugwu, sem í upphafi bókarinnar ræður sig sem húsdreng virðulegs manns í Nígeríu, Odenigbo - hins vegar greinir hún frá lífi tvíburasystra (Olanna og Kainene) af góðum ættum sem neyðast til að flýja fyrra líf þegar stríðið brestur á. Í söguna fléttast einnig hvítur blaðamaður, Richard, sem verður ástfanginn af annarri tvíburasysturinni. Og ástin blómstrar víða.Þó maður finni kröftuglega fyrir tilgangsleysi stríðsins meðan maður les bókina - og vonar eiginlega að Nígería vinni sigur sem fyrst til að lina þjáningar fórnarlamba - var virkilega áhugavert að fá nasasjón af því hvernig áróður Radio Biafra um yfirburði og sigurvissu getur fleytt þjóð í sárum ótrúlega langt.
Bókin er ljóslega hliðholl Biafra, en samt fjarri því svo mikið að maður fari að upplifa söguna sem fals. Þannig eru t.d. hermenn Biafra dregnir upp sem grimmir nauðgarar og skíthælar, rétt eins og óvinaherinn í Nígeríu.
Bókina keypti ég stuttu eftir að ég las Animal´s People (sjá færsluna hér á undan). Já, það er ótrúlega langt síðan ég hef náð að klára bók - enda verið meira í fræðibókagluggi undanfarið, án þess að klára eitt né neitt. Ég viðurkenni að ég var ótrúlega lengi að koma mér í bókina las 2-3 kafla fyrir nokkrum mánuðum og hélt svo áfram nýlega. Bókin grípur mann eftir nokkra kafla og þá verður ekki aftur snúið. Mæli hiklaust með henni.
Heimasíða bókarinnar er hér.
Furl
Facebook