The Interpretation of Murder las ég fyrir um sex vikum síðan, en ákvað að skella henni hér inn til að mæla með henni. Með hálfum huga þó. Bókin er ekkert snilldarverk, en flokkast þó sem fínasta afþreying. Bókin er eftir Jed Rubenfeld; sögu sviðið er New York rétt eftir þar-síðustu aldamót (1900). Fjallað er um heimsókn Sigmund Freud til Bandaríkjanna með fríðum flokki manna (t.d. Carl Jung); hvar hann ætlaði að vinna sálgreiningu sess í fræðunum. Bókin er fyrst og fremst skáldsaga, þó víða megi finna sögulegan fróðleik.
Þegar þetta er ritað er bókin með þrjár stjörnur af fimm mögulegum á Amazon - ætli ég sé ekki bara nokkuð sammála því mati? Og þó, ætli hún teygi sig ekki í þrjár og hálfa..........bara svona til að vera öðruvísi :-)
Furl
Facebook