The Last Testament e. Sam Bourne er fín bók og í mörgu fróðleg. Ég missti örlítið áhugan í upphafi, því bókin fjallar um lausn Palestínu/Ísrael deilunnar; eiginlega í "núinu". Hverjar eru líkurnar á því - og allt það? Mér leiðast yfirleitt skáldsögur sem byggja á raunverulegum persónum/atburðum og gerast í núinu. Það verður alltaf dálítið hallærislegt.
Eftir fyrstu 40-50 blaðsíðurnar eru allar efasemdir gleymdar og maður gleymir sér í sögunni. Einkenni á góðri bók :-)
Bókin fjallar um merkan fornleifafund (erfðaskrá Abraham) og baráttu Ísraelsmanna og Palestínumanna við að halda fundinum leyndum - af ótta við að umdeilt land sé gefið hinum aðilanum. The Last Testament er þrælspennandi bók og fræðandi (að sumu leyti). Ég hafði t.d. ekki áttað mig á hversu kristinir menn og múslimar eru nátengdir í gegnum Abraham.
Bókin fær fjórar stjörnur sléttar af fimm mögulegum hjá mér.
Furl
Facebook