Heim | Samband | Leit | Höfundur
The Secret History e. Donna Tart (4/5)
Bækur

The Secret HistoryThe Secret History, e. Donna Tart, er ljómandi skemmtileg bók sem fjallar um einangraðan hóp grískunemenda í bandarískum háskóla. Smátt og smátt fjarlægist hópurinn veruleikann og hegðun öll verður sífellt einkennilegri. Morð er framið.

Ég rakst á bókina á Amazon; notaði Listmania möguleikann til að finna bókina. Minnir að listinn hafi fjallað um 10 bækur sem maður verður að lesa áður en maður deyr.  Get í sjálfu sér alveg tekið undir það varðandi þessa bók.  Hún er hrífandi; í sumu óþægileg, kröfuhörð á lesanda og þvingar mann til að endurmeta einstaklega vel skapaðar sögupersónur í sífellu.

Ég mæli hiklaust með þessari bók. Hún er að skora rétt tæpar fimm stjörnur hjá Amazon - ég gef henni rétt tæpar fjórar (það voru örfáir dauðir kaflar inn á milli).

 
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
Error mysql!: Too many connections