The Uncommon Reader eftir leikarann og rithöfundinn Alan Bennett er afskaplega smellin bók. Í örstuttu máli fjallar hún um algera upplausn sem verður á heimilishaldi og skylduverkum Englandsdrottningar í kjölfar þess að hún, fyrir fullkomna tilviljun, tekur upp á að lesa bækur. Undir niðri kraumar ádeila á úrkynjanðan hlutverkaleik sem konungsfjölskyldan leikur dags daglega, vandlega skipulagðar uppákomur hvar þegnunum er fyrirfram sagt hvað drottning muni ræða og hvernig rétt sé að bregðast við.
I have to seem like a human being all the time, but I seldom have to be one. I have people to do that for me.
Drottningin er í uppreisn gegn hefðum og Bennett nær fullkomlega að koma persónunni til skila. Maður fattar drottninguna og það sem rekur hana áfram.
The Uncommon Reader er afskaplega stutt bók (124 bls), sem er e.t.v. gott því auðvitað er spurning hversu mikið er hægt að gera úr söguþræðinum. Endirinn, sem ég mun að sjálfsögðu ekki fjalla um hér, er vel útfærður og kemur nokkuð á óvart.
Furl
Facebook