Heim | Samband | Leit | Höfundur
Clifton Country Park
23/08 2007 13:45
Clifton Country Park í Salford hefur upp á margt að bjóða. Garðurinn er einn af uppáhaldsgörðunum okkar - ekki bara vegna þess að hann er örstutt frá okkur - heldur er hann að flestu gullfallegur.
Eini gallinn við garðin eru stór rafmagnsmöstur sem liggja yfir hann miðjan, en maður hættir fljótlega að pirra sig yfir því.


Í garðunum er leiksvæði fyrir börn, með skemmtilegri þrautabraut úr timbri í bland við meira móðins leiktæki. Þá er stórt vatn í garðinum sem hægt er að ganga í kringum eftir gullfallegum stíg. Út frá þeim stíg eru svo stígar sem liggja í allar áttir - inn í skógana, yfir ár og læki og þar fram eftir götum. Ég kann sérstaklega vel við hversu óáreittur garðurinn fær að vera - ólíkt mörgum almenningsgörðum sem eru ofskipulagðir og hver einasti stígur steinsteyptur.
Í garðinum er þá fjölbreytt dýralíf, hestar og asnar eru við inngang og fiskar í vatninu. Svo ekki sé minnst á fjölbreytt fuglalíf og gríðarlega stórar drekaflugur sem sveima um allt seinni part sumars.

Clifton Country Park er í Irwell dalnum, við hlið hringvegsins í kringum borgina. Hann mun vera einir 48 hektarar.
 

Gagnrýna?

Nafn:
vefur:
Gagnrýni (HTML leyft):
  The word for verification. Lowercase letters only with no spaces.
Kæfuvörn:
Day trip - Malham Cove http://post.ly/iQLA
Error mysql!: Too many connections