Heim | Samband | Leit | Höfundur
"Hryðjuverkalögin"
11/11 2008 22:21
Hin svokölluðu "hryðjuverkalög" voru samþykkt árið 2001.  Fullt heiti laganna er "Anti-terrorism, Crime and Security Act 2001".

Lögin eru gríðarlega fjölbreytt og ná m.a. yfir kynþáttafordóma, fordóma gegn trúuðum/vantrúuðum, samstarf við ESB í afbrotavörnum af ýmsu tagi, mútur, spillingu og eignafrystingu.

Þegar eignir útibús Landsbanka voru frystar, snemma í október 2008, var stuðst við 4 og 14 grein kafla 2 í nefndum lögum.  Sá kafli er endurunnin úr eldri lögum, frá 1964. 
Þessi tiltekni kafli er síður en svo beintengdur hryðjuverkum.  Það er reyndar svo, að orðin "anti-terrorism" og "terrorism" er hvergi að finna í lagakaflanum.

Þegar lögin fóru gegnum lávarðadeildina á sínum tíma, var lögð fram breytingartillaga þess efnis að kaflinn yrði beintengdur hryðjuverkastarfsemi. 

Þeirri tillögu var hins vegar hafnað, því ljóst var að lögin gátu átt við margskonar tilfelli sem í engu komu hryðjuverkum við.
 
The future of global banking: government resources used to create winners in the race for financial supremacy? http://bit.ly/5UT3U5